Um hitt og þetta.

26 júlí , 2007

Um bílslys og íþróttir

Filed under: Pirringur — Björn Hjaltason @ 8:30 am

Var að lesa fréttirnar í morgun. Það var helst í fréttum að kona fótbrotnaði á golfvelli í Borgarnesi þar sem hún varð fyrir Golfbíl. Ég á ekki orð, hvernig getur þú fótbrotið einhvern á golfbíl? Var þetta ölvunarakstur? Ef svo er gæti ökumaðurinn misst prófið? Þarf próf til að keyra golfbíl? Hvernig er með tryggingar, er ökumaðurinn að missa bónus? Og afhverju í fjandanum er fólk að keyra um á golfvöllum til að byrja með, það er nú einusinni þannig að golf er á jaðrinum með það að vera íþrótt þegar maður labbar með kylfurnar, hversu latur þarftu að vera til þess að vilja stunda hreyfingu en nenna ekki að hreyfa þig neitt. Ók, ég skal viðurkenna að golfbílar geta hjálpað aðilum sem ekki eiga auðvelt með hreyfingu að stunda golf, en þá fer ég aftur að spá, ætti það fólk ekki frekar að fara bara í sund, megrun og tala við hjartalækninn sinn um ástæðu þess að það verði mótt og másandi eftir göngutúr frá golfskálanum í golfbílabílskúrinn.

4 Ummæli »

  1. já þetta er náttlega hörkusport golfið. þetta er svona í hóp með skák og boccia

    Comment af Nina — 28 júlí , 2007 @ 11:17 pm

  2. bíddu bíddu….ertu bara hættur aftur að blogga?

    Comment af tonskald — 3 ágúst , 2007 @ 5:05 pm

  3. Þarf nú ekki að blogga daglega

    Comment af Bjössi H — 7 ágúst , 2007 @ 8:23 am

  4. Þú ert svo reiður ma’r… sjitt..
    Sko. díllinn með golfbíla er sá að þegar maður er of fullur til að ganga, notar maður golfbíl… duuuuh

    Comment af Siggi Ingi — 7 ágúst , 2007 @ 9:05 am


RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Theme: Silver is the New Black. Bloggaðu hjá WordPress.com.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.