Um hitt og þetta.

26 júlí , 2007

Um bílslys og íþróttir

Filed under: Pirringur — Björn Hjaltason @ 8:30 am

Var að lesa fréttirnar í morgun. Það var helst í fréttum að kona fótbrotnaði á golfvelli í Borgarnesi þar sem hún varð fyrir Golfbíl. Ég á ekki orð, hvernig getur þú fótbrotið einhvern á golfbíl? Var þetta ölvunarakstur? Ef svo er gæti ökumaðurinn misst prófið? Þarf próf til að keyra golfbíl? Hvernig er með tryggingar, er ökumaðurinn að missa bónus? Og afhverju í fjandanum er fólk að keyra um á golfvöllum til að byrja með, það er nú einusinni þannig að golf er á jaðrinum með það að vera íþrótt þegar maður labbar með kylfurnar, hversu latur þarftu að vera til þess að vilja stunda hreyfingu en nenna ekki að hreyfa þig neitt. Ók, ég skal viðurkenna að golfbílar geta hjálpað aðilum sem ekki eiga auðvelt með hreyfingu að stunda golf, en þá fer ég aftur að spá, ætti það fólk ekki frekar að fara bara í sund, megrun og tala við hjartalækninn sinn um ástæðu þess að það verði mótt og másandi eftir göngutúr frá golfskálanum í golfbílabílskúrinn.

25 júlí , 2007

Um ólánsmann

Filed under: Pælingar — Björn Hjaltason @ 2:07 pm

Það var ólánsmaður sem ég sá sofandi á einu bílastæðanna við austurstrætið í dag. Hann hafði vandað sig þegar hann var að leggja sjálfum sér og lá í miðju stæðinu og ég get ekki ímyndað mér að nokkur geti amast við veru hans þar í ljósi þess að borgað hafði verið í stöðumælinn.

Um blog

Filed under: Almennt hjal — Björn Hjaltason @ 11:25 am

Eins og alþjóð veit þá er ég duglegasti bloggari Íslands. Ég skrifa margar færslur á dag og það er alltaf eitthvað sem er þess virði að lesa og stundum jafnvel ómissandi eins og þessi kaldhæðni sem ég er að skrifa akkurat núna. Annars var ég að skipta um blog þar sem ég var neyddur til að skrá mig í eitthvað googledót til að halda áfram gamla blogginu, ég kann ekki við það að vera skrá mig aukalega í aðra þjónustu vegna þess að google vill geta notað mínar upplýsingar til að styrkja auglýsingatekjurnar sínar. Því býð ég sjálfan mig hérmeð velkominn á wordpress.

Theme: Silver is the New Black. Bloggaðu hjá WordPress.com.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.